Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir hjá Húsaskjóli seldi íbúðina mína hratt og vel. Allt stóðst 100%. Ég gæti ekki verið ánægðari með þjónustuna!!
Get 100 % mælt með Ásdísi Rósu hjá Húsaskjóli. Ótrúlega fagleg og vildi allt fyrir okkur gera. Eignin seldist á einu opnu húsi. Mun klárlega leita aftur til hennar þegar við erum aftur í fasteignahugleiðingum.
Við fengum fasteignasöluna Húsaskjól til að selja fasteign okkar í sumar eftir ábendingu frá öðrum. Fasteignin seldist fljótt og vel og fengum við einnig faglega aðstoð við að finna eign fyrir okkur við hæfi. Allt þetta ferli gekk fljótt og vel og fagmennska og áreiðanleiki Ásdísar Rósu hjá Húsaskjóli var með eindæmum. Við treystum henni 150% og ég get 100% mælt með Ásdísi Rósu og Húsaskjóli fyrir kaupum og sölu á fasteign. Takk fyrir frábæra þjónustu og áreiðanleika. Sigurlaug og Rafn.
Mjög góð þjónusta
Allt utanumhald og þjónusta hjá Húsaskjól við sölu fasteignar er fyrsta flokks. Einnig nýtti ég mér kaupendaþjónustu sem er heldur betur búin að borga sig og var sú þjónusta alveg frábær. Fagmennska hjá Ásdísi Ósk og hennar teymi alla leið. Mínar síður er líka mjög notendavæn og skemmtileg viðbót. Mæli með og mun nýta mér þjónustu þeirra aftur ef/þegar þarf.
Það var einkar ánægjulegt að kaupa draumaeignina með milligöngu Ásdísar Ósk Valsdóttur og Húsaskjól fasteignasölu, vildi bara gera þeim digital hæ fæf og ástarþakkir :-)
Ásdís Ósk og hennar teymi hjá Húsaskjóli fasteignasölu, er fyrsta flokks, við höfum átt frábær samskipti við Ásdísi Ósk og nýtt okkur hennar þjónustu hjá Húsaskjóli fasteignasölu við kaup og sölu eigna okkar nokkrum sinnum og myndum alltaf snúa okkur til hennar þegar við þurfum að kaupa eða selja eign. Hennar þjónusta er sú besta, frábær ráðgjöf, hröð og góð samskipti og auðvelt viðmót á netinu sem hjálpaði okkur mjög vel í gegnum bæði sölu- og kaup ferlið. Takk fyrir okkur Ásdís Ósk og Húsaskjól fyrir frábæra hjálp við bæði kaup og sölu fasteignar - stórkostleg þjónusta í alla staði! Sigga og Lúlli
Í aðdraganda hrunsins árið 2007, sá hún Ásdís Ósk hjá Fasteignasölunni Húsaskjóli um sölu á fasteign okkar. Þetta var mjög erfiður tími til að selja fasteignir, en með hjálp og ráðleggingum Ásdísar gekk ferlið vel. Þess vegna ráðlagði ég tengdaforeldrum mínum að nýta sér þjónustu hennar þegar þau ákváðu að minnka við sig. Ásdís tók að sér sölu á stóru einbýlishúsi þeirra í Breiðholti. Ferlið var bæði skemmtilegt og auðvelt og allt stóðst sem hún ráðlagði og lagði til. Ég mæli með að nýta þjónustu Ásdísar Óskar hjá Fasteignasölunni Húsaskjóli, þegar fólk er í fasteignahugleiðingum.
Virkilega snörp og fargleg vinnubrögð hjá Ásdísi Ósk sem hjálpaði okkur að eignast draumabústaðinn. Allt gekk svo hratt fyrir sig og var svo áreynslulaust. Engar áhyggjur af neinu.
Keypti nýverið fasteign hjá Húsaskjól fasteignasala og var Ásdís Ósk fasteignasalinn. Gríðarlega traustvekjandi, flott og skilvirkt ferli og er mjög ánægð með þjónustuna. Myndi klárlega velja aftur Húsaskjól.
Ásdís Ósk Valsdóttir stóð sig frábærlega við að selja fasteignina mína, og allt ferlið gekk bæði fljótt og snurðulaust fyrir sig. Ég mæli hiklaust með Ásdísi Ósk hjá Húsaskjóli fasteignasölu.
Eftir að hafa reynt að kaupa okkar fyrstu íbúð í þónokkurn tíma án árangurs ákváðum við að prófa að nýta okkur Kaupendaþjónustu hjá Húsaskjól fasteignasölu. Ásdís Ósk fasteignasali leiðbeindi okkur í gegnum allt ferlið skref fyrir skref, hvaða gögn við ættum að biðja um og hvað við ættum að hafa í huga í fasteignaleitinni. Einnig leiðbeindi hún okkur hvernig gott væri að setja upp tilboðin til þess að auka líkur á að okkar tilboð yrði fyrir valinu. Hún var alltaf fljót að svara spurningum okkar og fylgdi okkur mjög vel eftir. Þetta varð til þess að við enduðum loksins á að fá samþykkt kauptilboð á frábærri eign! Heimasíða Kaupendaþjónustunnar er mjög þægileg og aðgengileg. Inná mínum síðum gat ég haft allar íbúðir sem ég hafði áhuga á aðgengilegar sama stað , gat hengt öll þau skjöl og gögn við tilheyrandi eignir, og eins gat ég átt samskipti við Ásdísi Ósk fasteignasala um eignina beint inná tilheyrandi svæði. Þetta auðveldaði mér að halda betur utan um allt. Við erum alsæl með þjónustuna og mælum heilshugar með henni fyrir þá sem eru að standa í þeim frumskógi sem fasteignakaup getur verið. Takk fyrir okkur!
Það var algjör tilviljun að ég setti íbúðina mína á sölu hjá Ásdísi Rósu hjá Húsaskjól, en það átti ég ekki eftir að sjá eftir. Þvílíka þjónustu hef ég ekki fengið áður frá neinni fasteignasölu! Ásdís Rósa var alltaf tilbúin að svara öllum mínum spurningum og hún útskýrði ferlið mjög vel fyrir mér. Ég mæli 100% með Ásdísi Rósu og Húsaskjól.
Really happy with our new home and the service we got from Ásdís Ósk. After a lot of searching and going through different realtors, this is the first time we genuinely felt like the interests of both parties were equally taken care of.
Við hjónin höfðum verið að spá í að selja í soldin tíma og höfðum samband við Ásdísi Ósk Valsdóttir hjá Húsaskjóli Fasteignasölu sem var boðinn og búin að aðstoða okkur í þessu en þar sem við vorum ekki að finna þá eign sem okkur hentaði var hætt við sölu nokkrum sinnum en Ásdís Ósk gafst ekki upp þó svo við höfðum ákveðið að taka okkar eign út og hvíla fengum við tilboð sem við gátum ekki hafnað svo á endanum fengum við þá eign sem okkur hafði langað í og hentar okkur frábærlega og meigum við þakka þrautsegju Ásdísar Vals að þetta hafðist svo ekki sé minnst á fagmennskuna í öllu ferlinu hjá þeim.Topp þjónusta hjá Húsaskjóli Fasteignasölu.
Við mælum heils hugar með Húsaskjóli. Ásdís Ósk hefur reynst okkur mjög vel í söluferlinu og veitt dygga aðstoð í kaupum á annarri eign sem var þó ekki seld hjá Húsaskjóli. Hún fylgir viðskiptavinum vel eftir og við mælum hiklaust með gullpakkanum hjá henni. Helga og Geiri
Allt ferlið hjá Ásdísi Rósu var faglegt frá upphafi til enda. Get 100% mælt með henni ef þið eruð í söluhugleiðingum, mjög traust.
Ég bý í Noregi og þurfti að láta selja tóma íbúð fyrir mig í Reykjavík og vildi fá fasteignasala sem er faglegur, hreinskilinn og heiðarlegur (ef það er til ;/). Ég þurfti ráðgjöf varðandi undirbúning og verkið þurfti að framkvæma að mér fjarstöddum. Móðir mín mælti sterkt með Ásdísi Ósk hjá Húsaskjól Fasteignasala, eftir að hafa keypt íbúð fyrir nokkrum árum með hennar viðkomu. Ég setti mig í samband við Ásdísi Ósk Valsdóttir og íbúðin seldist fljótt og á ágætu verði. Sveinbjörn Rosén sá um alla samninga og það gekk létt og snuðrulaust fyrir sig. Ég er ánægður með þjónustuna í alla staði.
Við leituðum til Ásdísar Óskar hjá Húsaskjóli þegar kom að því að selja eignina okkar. Hún var frábær í alla staði, snögg og fagmennskan allsráðandi. Hún seldi eignina kviss bang og allt stóðst uppá 100%! Þar sem við þurftum einnig að nota aðra fasteignasölu á sama tíma þar sem við vorum einnig að kaupa eign þá sá maður mjög fljótt muninn á gæðum og fagmennsku. Mæli 100% með Ásdísi Ósk og Húsaskjóli og myndi aldrei leita annað en til þeirra ef ég þarf að selja aftur. Hún fór langt ut fyrir sitt starf í ráðleggingum og hjálpsemi.
Við keyptum okkar fyrstu íbúð í gegnum Húsaskjól og öll okkar samskipti fóru í gegnum Ásdísi Ósk fasteignasala. Hún var mjög fagleg og hjálpleg og leiddi okkur í gegnum fyrstu kaupin. Hún færði okkur litlar gjafir og hefur meira segja sent okkur póst til að athuga hvernig okkur líður í nýju íbúðinni. Ég mæli vel með þjónustu þeirra á Húsaskjóli.
Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir, var fasteignasalinn sem við vorum í samskiptum við, við kaupin á okkar íbúð. Hún kom utan vinnutíma til að við gætum fengið að skoða íbúðina og öll okkar samskipti fóru vel fram og voru góð. Takk fyrir okkur Húsaskjól.
Öll þjónusta og samskipti við Húsaskjól var til fyrirmyndar. Ásdís Ósk hefur einstaklega gott lag á að setja upplýsingar um fasteignamarkaðinn og eignir fram á skilmerkilegan hátt. Fagleg og traust þjónusta í alla staði!
Húsaskjól er flott fyrirtæki sem er komið mjög framarlega þegar það kemur að tækni. Ferlið sjálft var mjög þægilegt þegar það kom að pappírsmálum, flest allt rafrænt og þægilegt. Ásdís Ósk stóð sig einnig til fyrirmyndar.
Góð Þjónusta. Ég fékk símtal frá Ásdísi Ósk þegar samþykkt kauptilboð féll í gegn hjá öðrum kaupendum. Ásdís Ósk bauð mér þannig aftur að borðinu sem endaði með að ég fékk eignina. Topp þjónusta og góð upplýsingagjöf.
Frábær þjónusta og auðveld samskipti hjá Ásdísi Ósk og Húsaskjóli fasteignasölu
Ásdís Ósk Valsdóttir hjá Húsaskjól fasteignasölu seldi íbúð fyrir mig í fyrra, allt sem hún sagði um söluna stóðst 100%, hún tók á móti fólki í opnu húsi og sá um þetta frá a til ö, mæli með henni og hennar samstarfsfólki hjá Húsaskjóli
Við hjónin seldum tvær og keyptum eina eign á síðasta ári í gegnum Húsaskjól. Hún ÁsdísÓsk er fagleg og fræðandi, skemmtileg og hreinskilin. Við vorum alsæl með ferlin og öll samskipti. Myndum alltaf og fyrir öll mæla með Húsaskjóli.
Flott og góð þjónusta, halda vel utan um allt og dugleg að tékka á hvernig allt gengur í ferlinum
Við erum búin að nota þjónustu ykkar hjá Fasteignasölunni Húsaskjól bæði við kaup og sölu og finnst við hafa verið í öruggum höndum í því ferli frá A-Ö Hjá Húsaskjól höfum við fengið toppþjónustu hjá toppfólki. Við fundum að það var vel hugsað um okkur og allar ráðleggingar gáfust vel. Þessvegna getum við mælt með þjónustu ykkar af heilum hug.
Bara hægt að segja eitt geggjuð þjónusta manni líður svo vel í kringum þau hjá húsaskjól , þau tala við mann á mannamáli því þessi húsakaup geta reynst flókin og erfið . Mæli eindregið með þeim hjá húsaskjól.
Við hjónin höfum í gegnum tíðina átt viðskipti við nokkrar fasteignasölur. Húsaskjól og Ásdís Ósk fannst okkur bera af í fagmennsku. Öll vinnubrögð og viðmót voru til fyrirmyndar. Það er okkur mikil ánægja að mæla með Húsaskjóli og þeirra frábæru þjónustu.
Mæli 100% með Húsaskjól fasteignasölu, ég hafði samband við Ásdísi Ósk Valsdóttur haustið 2020 og bað hana að selja fyrir mig og aðstoða við að kaupa. Það gekk eftir og í janúar 2021 seldist mín íbúð en þá tók við erfitt tímabil að finna réttu íbúðina fyrir mig í þeim hvirfilvindi sem fasteignamarkaðurinn fór í þarna snemma árs 2021. Í apríl keypti ég loks draumaíbúðina, það hefði aldrei tekist nema með hjálp Ásdísar. Hún stóð með mér í gegnum þetta allt og ég er henni svo innilega þakklát fyrir hjálpina. Svo er allt utanumhald til fyrirmyndar, persónuleg þjónusta og fagleg vinnubrögð.
Ég ákvað að selja íbúðina mína, hæð og ris og fékk Ásdísi Ósk hjá fasteignasölunni Húsaskjól til að taka það að sér. Skjót viðbrögð, nákvæmi, fagmennska og áreiðanleiki einkenndi alla hennar aðkomu og hennar teymis hjá Húsaskjóli. Ásdís skoðaði, gerði verðmat, útbjó vídeó og setti inn auglýsingar, sýndi og seldi - allt söluferlið allt gekk hratt og örugglega fyrir sig, jafnt fyrir seljanda og kaupanda. Sveinbjörn sem sér um alla skjalavinnslu sá síðan um alla pappírsvinnu af mikilli kunnáttu og nákvæmni. Ég get heilshugar mælt með Ásdísi Ósk og teyminu hjá Húsaskjól
Fyrir mig, sem hef enga reynslu af því að selja eign, þá var ómetanlegt að hafa hana Ásdísi Ósk hjá Húsaskjól í þessu ferli, hún er svo fagleg og veit alveg hvað hún er að gera, sem er mjög traustvekjandi fyrir óreynda.
Húsaskjól fær einkunina 12 af 10 möguleikum hjá okkur algjörlega frammúrskarandi þjónusta, mæli allan daginn með Ásdísi Ósk sem stóðst allar væntingar og rúmlega það við sölu á minni eign. Seldist hratt og örugglega og öll vinnan hjá Húsaskjól í framhaldi alveg hreint frábær. Mæli svo 100% með þeim.
Við fengum topp þjónustu hjá Ásdísi Rósu fasteignasala. Getum sannarlega mælt með Húsaskjóli sem fasteignasölu.
Ásdís er sú besta í bransanum - öll samskipti og vinna uppá 10 enda er hún sú eina sem kemur til greina þegar það kemur að kaupum eða sölu hjá mér
Ég skoðaði fasteign sem var í sölu hjá Húsaskjól og þó sú eign hafi ekki hentað mér, þá leist mér svo vel á fasteignasalann Ásdísi Ósk að ég ákvað að fá hana til selja mína fasteign. Það söluferli gekk bæði hraðar og betur fyrir sig en ég hafði þorað að vona og því gef ég teyminu hjá Húsaskjól mín bestu meðmæli.
Professional, good and personal service and I highly recommend Húsaskjól.
Fagleg þjónusta
Ásdís Ósk hefur selt fyrir mig 3 Fasteignir, þar á meðal tvær krefjandi eignir í erfiðum markaði. Það er frábært að eiga samskipti við Ásdísi Ósk og hún fylgir vel eftir sölum með öryggi. Myndi hiklaust leita aftur til Húsaskjóls ef ég er í fasteignahugleiðingum 😊. Það er líka gott að geta verið sveigjanlegur á kostnað með gull, silfur eða brons pökkunum. Takk fyrir okkur
Við frúin keyptum okkar fyrstu eign fyrr á árinu í gegnum Húsaskjól. Hún Ásdís Ósk var frábær og fær okkar bestu meðmæli!
Mæli með. Flott þjónusta og Ásdís Rósa reyndist okkur mjög vel.
Frábær fasteignasala, fagmannleg vinnubrögð, fljót að svara og svara öllu sem spurt er að.
Húsaskjól fær mín bestu meðmæli eftir að hafa tvisvar fengið þjónustu frá þeim. Ferlið gekk hratt og vel fyrir sig og þægilegt að geta notað „mínar síður“ fyrir samskipti. Ásdís Ósk ætíð fljót að bregðast við, er fagleg og hafði góða innsýn í þarfir okkar. Takk fyrir okkur! Fyrirmyndarþjónusta!
Góð og persónuleg þjónusta. Vel hugsað út í alla þætti og áhersla lögð á fagmennsku og réttar upplýsingar. Hægt að velja milli þjónustupakka en engin pressa á að fara dýrari leið.
Frábær þjónusta og allt til fyrirmyndar!
Frábær þjónusta og góð ráð varðandi sölu á minni eign. Myndi mæla með Húsaskjóli hiklaust.
Við vorum hæst ánægð með þjónustu Húsaskjóls. Gekk hratt fyrir sig og allt stóðst!
Við leituðum til Ásdísar Ósk í Húsaskjóli fasteignasölu til að selja og fá ráðleggingar við kaupa á fasteign á erfiðum markaði og reyndust þau okkur rosalega vel. Frábær þjónusta og við mælum klárlega með að nýta sér þeirra þjónustu.
Wonderful service and easy to work with. Highly recommend.
Við keyptum nýverið okkar fyrstu íbúð sem Ásdís Ósk fasteignasali var að selja, virkilega flott og fagleg þjónusta. Höfðum kynnst nokkrum fasteignasölum áður en við hittum á Ásdísi Ósk, það sem einkenndi hana er hreinskilni, sanngirni og fús í að leiðbeina að bestu getu. Við getum hiklaust mælt með Ásdísi Ósk og Húsaskjóli fasteignasölu. Toppþjónusta!
Við hjónin keyptum fasteign af Ásdísi Ósk og fasteignasölunni Húsaskjól og þau seldu okkar fasteign í framhaldinu. Við vorum afar ánægð með þá góðu þjónustu sem við fengum í því ferli. Við söluna á okkar eign þá nýttum við okkur nokkrar þjónustuleiðir, þ.e. góðar ljósmyndir, þrívíddarmyndir og walk in myndband. Ferlið við söluna var allt afar opið og gegnsætt og samskiptin við fasteignasöluna í gegnum mínar síður á þjónustuvef fyrirtækisins var frábær leið til að fylgjast með framvindunni í söluferlinu. Það var afar gott að geta nálgast góðar upplýsingar um söluna með einum smelli. Mælum klárlega með þjónustu Húsaskjóls fyrir fólk í sölu eða kauphugleiðingum.
Við hjónin erum afar glöð með þá þjónustu sem okkur var veitt hjá Húsaskjóli og Ásdísi Ósk. Fagleg og persónuleg þjónusta í alla staði. Takk fyrir okkur. Hjördís og Guðlaugur
Húsaskjól fær mín bestu meðmæli! Ótrúlega persónuleg, örugg og góð þjónusta.
Frábær þjónusta. Mæli 100% með Ásdísi Ósk hjá Húsaskjóli fasteignasölu
Ásdís Ósk fasteignasali hjá Húsaskjól aðstoðaði okkur við að kaupa eign. Hún veitti faglega og góða þjónustu. Get mælt með henni og Húsaskjól fasteignasölu.
Frábær og fagmannleg þjónusta. 10/10
Topp þjónusta, fá mín bestu meðmæli.
Við vorum mjög ánægð með Húsaskjól og Ásdísi Ósk fasteignasala. Mikil og góð samskipti og eftirfylgni, öllum okkar spurningum var svarað strax. Öll atriði í aðdraganda sölu gekk hratt og örugglega og stundvíslega , stílisti, ljósmyndari og allt sem því fylgir. Mælum með :-)
Frábær þjónusta við kaup á fyrstu íbúð, mun ekki hika við að nýta mér þeirra þjónustu aftur í framtíðinni.
Frábær þjónusta
Ég hef nýtt mér þjónustu Ásdísar Óskar og Húsaskjóls við kaup og sölu á tveimur heimilum síðustu 10 ár og hef verið hæstánægð með þjónustuna í bæði skiptin enda er hún persónuleg, áreiðanleg og góð.
Ég þurfti að selja íbúð sem stóð tóm. Ég valdi Gullpakkann hjá Húsaskjóli fasteignasölu og Ásdís Ósk fasteignasali sá um allt frá A-Ö. Þau bjóða upp á lausnir sem henta uppteknu fólki gríðarlega vel. Mér fannst mikill kostur að þau héldu utan um allar upplýsingar á rafrænu formi og ég gat fylgst með söluferlinu á minni síðu. Kaupsamningur gekk hratt og vel fyrir sig og mikill kostur að losna við pappírsflóðið sem fylgir honum yfirleitt þar sem þau voru með öll fylgiskjölin í spjaldtölvu. Ég gef þeim mín bestu meðmæli. Brynjar Topplögnum ehf.
Virkilega færir fasteignasalar á Húsaskjóli og frábært þjónusta. Mæli klárlega með Ásdísi Ósk ef þú ert að hugsa um að selja.
Takk fyrir frábæra og persónulega þjónustu. Festi kaup á yndislega eign í Grafarvogi. Ásdís Ósk, þú ert perla 🥰
Get gefið Húsaskjól mín bestu meðmæli, öll samskipti fumlaus og fagleg. Einnig er gaman að fylgjast með ýmsum nýjungum sem þau eru að bjóða uppá svo sem eignavaktina og annað.
Frábær og fagleg þjónusta. Ásdís Ósk seldi tvær eignir fyrir mig og veitti góða ráðgjöf varðandi kaup á nýrri. Mæli hiklaust með Húsaskjól :)
Ásdís Ósk seldi fyrir mig fasteign á næstum 0,1. Frábær þjónusta.
Frábær fasteignasala þar sem fasteignasalarnir eru áhugasamir, virkir og með eftirfylgni, mæli 100% með þeim.
Quick responses to queries, and quick work in general. Bought a condo in less than a week!
Takk fyrir okkur, bæði keyptum og seldum, gekk allt vel, gangi ykkur vel
Var að kaupa mína fyrstu eign og var svo heppinn að það var í gegnum Húsaskjól því þjónustan var frábær, ekkert smá gott viðmót og frábært starfsfólk Vissi ekkert um íbúðarkaup enda aldrei keypt áður og vissulega hafði ég margar spurningar sem öllum var svarað og rúmalega það.. allt tiptop og ég hæst ánægður. Kem klárlega til með að nýta mér þjónustu þeirra í framtíðinni
Við höfum verið mjög ánægð með þjónustuna hjá Húsaskjóli og getum við hiklaust mælt með þeim. Fagleg og góð þjónusta.
Var að klára kaupsamning með húsaskjóli, get sagt að það var algerlega frábært í alla staði að stunda fasteignaviðskipti með þvílíku fagfólki. Öll samskipti við fasteignasöluna hafa verið mjög þægileg alveg frá upphafi og allt eins og best verður á kosið í kaupferlinu hjá mér. Ég mun snúa mér til húsaskjóls þegar ég ákveð að selja
Húsaskjól seldi fyrir mig íbúð í haust. Salan gekk hratt og vel. Íbúðin seldist eftir forsýningu. Á kaupsamningsfundinum var farið yfir öll gögn rafrænt á Ipad, ekkert pappírsflóð og engar eftirá leiðréttingar á gögnunum.
Toppþjónusta hjá Húsaskjóli en ég hef selt og keypt af þeim í áraraðir og alltaf gengur allt hnökralaust fyrir sig - Mæli 120% með Húsaskjól og Ásdísi Ósk
Ég átti mín viðskipti við Húsaskjól árið 2012, fékk ég mjög góða þjónustu hjá Ásdísi Ósk og viðmótið alveg frábært. Hef þurft að leita til þeirra síðan með spurningar og ekki hefur staðið á svörum og þjónustu. Ég mæli með Húsaskjól fasteignasölu.
Frábær þjónusta hjá Ásdísi Ósk, frá A-Ö myndi örugglega leita hingað aftur ef ég þyrfti að kaupa eða selja. fengum stílista til að leiðbeina okkur fyrir sölumyndatöku og öllu fylgt vel eftir. Frábært fólk sem vinnur þarna með toppþjónustu
Hún Ásdís hjá Húsaskjól sá um söluna á íbúðinni okkar og gekk ferlið allt saman rosalega vel. Þjónustan var frábær og mikið gert til að koma eigninni á framfæri. Ef ég væri í söluhugleiðingum aftur myndi ég hiklaust leita til Húsaskjóls aftur. Takk fyrir okkur
Var að klára kaupsamning með húsaskjóli, get sagt að það var algerlega frábært í alla staði að stunda fasteignaviðskipti með þvílíku fagfólki. Öll samskipti við fasteignasöluna hafa verið mjög þægileg alveg frá upphafi og allt eins og best verður á kosið í kaupferlinu hjá mér. Ég mun snúa mér til húsaskjóls þegar ég ákveð að selja
Hvar á maður að byrja? Tvær eignir seldar í sama húsi á viku, þ.e. okkar og þeirra sem keyptu af okkur. Það segir ýmislegt. Frábær þjónusta, gott viðmót og hlýleiki. Mæli hiklaust með Húsaskjól og Ásdísi Ósk.
Ljómandi góð þjónusta. Allt upp á 10 hjá þessu fólki.
Við hjónin vorum að skoða Fasteignir og fundum draumahúsnæðið hjá Húsaskjól. Okkur fannst þægilegt hvað Ásdís Ósk brást fljótt við þegar við höfðum samband. Ásdís Ósk var alltaf til staðar ef við vorum með einhverjar spurningar, svaraði tölvupóstum og síma hratt og örugglega. Talaði við okkur á mannlegum og eðlilegum nótum. Við mælum með Húsaskjól.
Framúrskarandi þjónusta og fagmennska! Takk fyrir mig
Settum einbýlishús í Grafvogi í sölu hjá Húsaskjóli og sinnti Ásdís Ósk okkur mjög vel. Salan gekk tiltölulega hratt fyrir sig þrátt fyrir Covid takmarkanir við sýningu eignarinnar. Ásdís Ósk nýtti netið til fulls og var þrívíddar kynningin sem hún gerði sérlega fagleg og flott. Mælum heilshugar með þjónustu Húsaskjóls
Mjög ánægð með þá þjónustu sem ég fékk. Öllu svarað fljótt og vel. Eignin seldist hratt og fagmannlega staðið að öllu í ferlinu. Mæli hiklaust með Húsaskjól fasteignasölu.
Þau hjá Húsaskjóli veittu mér svakalega flotta þjónustu þegar ég seldi íbúðina mína nýlega. Íbúðin seldist mjög hratt og ég er alveg í skýjunum yfir þá frábæru hjálp og þjónustu sem ég fékk hjá þeim. Mæli hiklaust með þessari fasteignasölu!
Ég seldi eignina mína hratt og örugglega í gegn um Ásdísi Ósk hjá Húsaskjól. Mæli eindregið með.
Starfsfólk Húsaskjóls eru fagmenn fram í fingurgóma. Þjónustan er frábær og ég mæli 100% með þeim.
Frábær þjónusta hjá Ásdísi Ósk
Mæli með Húsaskjól sem seldi eignina okkar á stuttum tíma, allt mjög faglega unnið og til fyrirmyndar.
Ég ákvað að nota Húsaskjól við sölu á eign minni eftir að hafa skoðað mig vel um og séð að þeirra auglýsingar stóðu uppúr. Mjög góð þjónusta, all ferlið auðvelt og nútímaleg. Ég mundi ekki nota aðra fasteignasölu.
Vönduð vinnubrögð. Aðrar söluaðferðir. Mjög góð þjónusta. Traust starfsfólk. Allt stóðst 100%
Ásdís Ósk og hennar fólk stóðu sig afar vel í því að selja raðhúsið hjá öldruðum föður mínum. Afar fagleg vinnubrögð og allt ferlið vesenislaust. Ég gef þeim tíu og mæli hiklaust með Húsaskjóli ef það á að skipta um húsnæði.
Afar lipur og góð fasteignasala. Öll þjónusta stóðst eins og stafur í bók, snögg að svara fyrirspurnum og sveigjanleg með öll erindi. Leiðbeindu frábærlega með allt ferlið við að kaupa fasteign og allt gekk vel upp í þeirra höndum. Allt frá því að finna húsnæði og skoða, gera tilboð og síðan kaupsamningur, greiðslur og undirskriftir. Það er ómetanlegt að hafa haft svona góða heildarþjónustu við fasteignakaup.
Við vorum afar ánægð með Húsaskjól. Þjónustan var persónuleg og allt stóðst 100%. Takk fyrir okkur! Óskar Finnsson & María Hjaltadóttir
Skjót og góð þjónusta, löguð að kröfum okkar.
Mjög fagleg og persónuleg þjónusta. Hafa komið að sölu tveggja íbúða í hjá okkur og allt ferlið og utanumhald verið til fyrirmyndar.
Húsaskjól sá um að selja fyrir mig íbúðina mína. Fagmenskan og þjónustan var í fyrirrúmi. Allt stóðst sem var sagt. Þau unnu sannanleg fyrir þessum fimm stjörnum. Takk fyrir mig.
Great professional services with a personal touch
Persónuleg og góð þjónusta.
Excellent service good atmosphere and professional work.
Fagmennska, natni og góð eftirfylgni er það sem kemur fyrst upp í hugann. Ásdís Ósk vinnur vinnuna sína vel, allt upp á 10
Frábær þjónusta, fimlaus, traust og sanngjörn
Húsaskjól = pottþétt þjónusta, þegar fasteignamarkaðurinn var enn botnfrosinn eftir hrunið þurfti ég að láta selja 2 eignir fyrir mig, Ásdís Ósk Valsdóttir seldi báðar eignirnar fyrir mig fjlótt og allt gert af fyllstu fagmennsku það er ekki hægt annað en að gefa fullt hús stiga
Ásdís Ósk er búin að vera einn farsælasti fasteignasali Íslands um árabil og með þeim söluhæstu. Nú er ég búin að kynnast því að er engin tilviljun. Hún kemur vel fram við viðskiptavininn og henni fer vel úr hendi að leysa úr málum. Hún klára málin !
Betri og traustari fasteignasölu er ekki hægt að hugsa sér 100% fagmennska í alla staði mun klárlega eiga viðskipti við hana aftur og mun mæla með henni til allra sem vilja tryggja sér 100% fagmennsku
Mælti með Ásdísi Ósk og Húsaskjóli við vin minn sem vildi selja íbúð nýlega. Salan gekk hratt og örugglega fyrir sig og hann var yfir sig ánægður með alla þjónustuna. Hvað þá ég sem fékk í þakklætisskyni fyrir ábendinguna gjafabréf fyrir 2 á flott veitingahús frá fasteignasölunni!
Seldi eignina innan þess tíma sem við þurftum þrátt fyrir að markaðurinn væri hægur.
Fimm stjörnur á Húsaskjól! Takk fyrir ykkar frábæru vinnu gott fólk.
Það gekk vel að selja okkar eign
Frábær persónuleg þjónusta. Allt sem samið hafði verið um stóð óbreytt. Hefði bara ekki getað verið heppnari með fasteignasölu.
Ég mæli hiklaust með Húsaskjól fyrir alla sem eru í söluhugleiðingum í dag. Hún Ásdís Ósk stóð sig frábærlega í söluferlinu hjá okkur og fór nýjar leiðir í sölunni með t.d. myndbandskynningu um íbúðina. Allt gekk eins og í sögu. Takk fyrir okkur
Great and professional service, everything as promised.
Husaskjol provides both personal and professional service. I am a happy customer
Örugg þjónusta með persónulegu og skemmtilegu sniði. Sérlega flott eftirfylgd og áframhaldandi tengsl við viðskiptavinina til fyrirmyndar :)
Mjög góð þjónusta.
Best :)
Ég seldi eign í gegnum Húsaskjól fyrir nokkrum árum og fékk topp þjónustu. Fagleg vinnubrögð og viðmótið þægilegt.
Besta fasteignasalan í bænum!!
þolinmæði og fagmennska eru þau orð sem koma upp í hugann þegar ég hugsa ,,fasteignasali". Það er eins gott að fá einhvern sem kann til verka þegar selja á fasteign. Hjá Húsaskjól var fagmannlega að öllu staðið, allt niður í minnstu atriði sem maður svo sá að voru ekki í lagi á öðrum sölum (skoðuðum nokkur hús sem ýmsar fasteignasölur sáu um). #bestafasteignasalan
Good and professional service at Húsaskjól!
Toppþjónusta, fagleg og þægileg! Mæli með :)
Mjög fagleg vinnubrögð, allt skýrt og skipulega framkvæmt. Viðmót hlýlegt og yfirbragð bjartsýni.
Der var aldrig spor tvivl om, at Ásdís Ósk både kunne og ville sælge lejligheden for mig. ❤ Flot professionelt arbejde. Tak.
Við skoðuðum fasteign í gegnum Húsaskjól. Okkur fannst þægilegt hvað þau brugðust hratt við að sýna og svöruðu öllum okkar spurningum hratt og vel. Þegar kom að tilboðsgerð þá veittu þau okkur mjög góða ráðgjöf. Kaupsamningurinn gekk eins og best var á kosið. Við mælum heilshugar með Húsaskjóli og Ásdísi Ósk.
Ég hef þurft að leita til þeirra í nokkur skipti og ávallt fengið skjóta og örugga þjónusta og ekki hefur það eyðilagt fyrir hversu hratt eignir seljast.
Ég þurfti að selja íbúð sem stóð tóm, ég valdi Ásdísi Ósk og Húsaskjól þar sem þau veita fulla þjónustu og ég þurfti því ekkert að gera. Það stóðst allt sem þau lofuðu og gott betur. Var mjög ánægður með allt ferlið og gef þeim mín bestu meðmæli.
Þvílík og önnur eins þjónusta! Ég keypti íbúð af Ásdís Ósk Húsaskjóli og hef ég aldrei fengið eins persónulega, hraðvirka og faglega þjónustu hjá neinni fasteignasölu fyrr. Það skiptir máli að hafa faglegt fólk að selja eignina sína og ég mun mæla með þjónustunni við alla sem ég þekki sem eru í söluhugleiðingum. Þegar ég sel eignina mína mun ég tvímælalaust eiga viðskipti við Húsaskjól. Takk fyrir frábæra þjónustu.
Húsaskjól og Ásdís Ósk aðstoðuðu okkur við að selja eignina okkar í síðustu viku. Vinnubrögðin voru til fyrirmyndar og ferlið gekk ótrúlega hratt og vel fyrir sig. Mælum hiklaust með Húsaskjóli!
Við mæðgurnar áttum allar viðskipti við Húsaskjól og Ásdísi Ósk. Við vorum allar virkilega ánægðar með þjónustuna, viðmótið, samskiptin og allt tip top frá A-Ö hjá þeim. Ásdís Ósk var alltaf til staðar ef maður var með einhverjar spurningar, svaraði tölvupóstum og síma hratt og örugglega, talaði við okkur á mannlegu og eðlilegu nótunum og leyfði mér/okkur að fylgjast með öllu ferlinu. Upplýsingaflæði upp á 10! Ég mæli 100% með Húsaskjól hvort sem þið eruð að selja eða kaupa!
Ég mundi gefa Húsaskjól 6 stjörnur ef ég gæti. Er bæði búin að selja og kaupa með þeirra hjálp. Góð þjónusta og gott viðmót. Mun mæla með henni við hvern sem er
Þegar ákveðið var snemma vors að selja íbúðina varð Ásdís Ósk og Húsaskjól fljótt valkosturinn. Það var góð ákvörðun, þjónustan ávallt til fyrirmyndar, ef ekki var hægt að svara í síma strax var ávallt hringt fljótlega til baka, jafnvel á laugardögum eða sunnudögum. Öll samskipti hafa verið á ,,mannamáli" en ekki einhverju viðskiptamáli svo aldrei hefur farið á milli mála nokkuð einasta atriði. Við dvöldum um mánaðartíma í sumar í Danmörku og þangað fengum við allar upplýsingar um tilboð og annað sem skipti máli, í síma eða tölvupósti. Þjónustan er persónuleg og til til hreinnar fyrirmyndar. Mæli með Húsaskjóli hvar sem er, hvenær sem er, og við hvern sem er.
Takk fyrir aðstoðina Ásdís Ósk og félagar 😊 allt tipp topp og ekkert vesen.
As a first time buyer, I had no idea what to expect. Húsaskjól was awesome and made the process very smooth. Húsaskjól was so helpful and informative on how the whole process worked. I’m very grateful!
Við bæði seldum okkar eign og keyptum aðra eign hjá Húsaskjól í sumar, frábær þjónusta og ég gef Ásdís Ósk fullt hús stiga fyrir góða þjónustu. Vorum komin með aðra fasteignasölu fyrir okkar íbúð en ákváðum að færa okkur í Húsaskjól frekar og vera með þá bæði kaup og sölu á sama stað! Mæli algjörlega með því, sparar óteljandi ferðir milli fasteignasala með pappíra og fleira. Mæli með Húsaskjól, góð þjónusta, snögg svörun og við alsæl.
Eftir að hafa keypt hjá Húsaskjóli fyrir nokkrum árum kom engin önnur fasteignasala til greina til að selja, Ásdís Ósk og Auðun sáu um söluna og ég var virkilega ánægð með þau. Þau héldu mér vel upplýstri allan tímann og Sveinbjörn sá um að allur frágangur gekk snuðrulaust fyrir sig. Frábært teymi hjá Húsaskjóli og ég mæli svo sannarlega með þeim.
Við höfum góða reynslu af kaupum og sölu af Húsaskjóli. Þegar við ákváðum að selja íbúð sem við keyptum af Húsaskjóli voru þau augljós kostur. Ásdís Ósk sá um að selja hana og það stóðst allt sem talað var um. Sveinbjörn lögfræðingur Húsaskjóls sá um allan skjalafrágang vegna kaupsamnings og afsals og var vinnan hans skotheld. Takk fyrir okkur, mælum svo sannarlega með Húsaskjóli
Ég keypti eign í gegnum Húsaskjól og var mjög sátt við allt þannig að þegar kom að því að selja þá kom enginn annar til greina. Ásdís Ósk sá um söluna, hún undirbjó eignina mjög vel, pantaði stílista og fagljósmyndara og videomyndatöku, auglýsti eignina á samfélagsmiðlum og seldi hana á eignum degi á ásettu verði. Þjónustan var til fyrirmyndar og allt sölu- og kaupferlið var hnökralaust. Gæti ekki verið sáttari.
Þegar við settum íbúðina okkar á sölu höfðum við samband við hana Ásdísi Rósu og sáum svo sannarlega ekki eftir því. Hún kom heim til okkar, glaðleg og auðvelt að tala við hana. Hún sýndi okkur nokkur pakkatilboð sem hún bauð upp á, ansi spennandi tilboð og sniðug til að uppfylla mismunandi þarfir. Alltaf var auðvelt að ná í hana Ásdísi Rósu og ef hún svaraði ekki þá hafði hún alltaf samband tilbaka fljótlega. Okkar íbúð náði svo aldrei inn á netið þar sem Ásdís Rósa náði að selja hana strax og fengum við meira að segja meira fyrir íbúðina en við gerðum okkur vonir fyrir :) Ásdís Rósa fær okkar bestu meðmæli og þökkum við henni kærlega fyrir allt, kær kveðja Svava og Óli.
Frábær þjónusta, persónubundin leiðsögn og ráðgjöf af hálfu Ásdísar Rósu Ásgeirsdóttur fasteignasala alveg til fyrirmyndar. Kærar þakkir :)
Ásdís Rósa, tók að sér að selja fasteign mína og ekki tók það hana langan tíma að selja hana. Á föstudegi hafði ég samband, og sunnudeginum 8 dögum eftir fyrsta samtal, var eignin seld ! Ég mæli með Húsaskjól 100% þjónusta og fagleg vinnubrögð.
Ásdís Rósa seldi húsið okkar á Suðurlandi. Persónulega þjónusta og fagmennska einkenna hennar vinnubrögð. Mæli með Húsaskjól fasteignasölu við hvern þann sem er í fasteignahugleiðingum.
Guðbrandur hjá Húsaskjól hefur bæði hjálpað mér að selja eign og kaupa og get ég hiklaust mælt með honum. Hann er heiðarlegur og áreiðanlegur og alltaf fljótur að svara fyrirspurnum. Traust og góð þjónusta.
Guðbrandur hjá Húsaskjól sá um sölu á íbúð fyrir okkur fjölskylduna , allt 100%. Takk fyrir okkur.
Ég var og er mjög ánægð með þjónustu Guðbrandar Jónassonar hjá Húsaskjóli við sölu á einbýlishúsi mínu í vor. Tel að ég hafi ekki getað fengið betri þjónustu. Takk Guðbrandur.
Ákváðum að leita til Húsaskjól Fasteignasölu til að fá verðmat á eignina okkar og þar sem við fengum strax góða þjónustu og skjót svör sá Auðunn um að setja íbúðina okkar strax á sölu. Eignin okkar seldist á innan við sólarhring, langt fram úr væntingum okkar og allt ferlið gekk mjög snurðulaust fyrir sig. Frábær og fagleg þjónusta!
Jóhanna á Húsaskjól sá um að selja fyrir mig litla íbúð í Leitumum rétt við Versló og Kringluna. Sá meðal annars um flotta myndatöku á eigninni, það er skemmst frá því að segja að íbúðin seldist afar fljótt og allt sem kom við ferlinu sá Jóhanna um af stakri fagmennsku og með ljúfu geði og framkomu. Mæli hiklaust með Húsaskjól og Jóhönnu.
Jóhanna er með góða vinalega nærveru og það er gott að spjalla við hana um fasteignamál. Málin gengu hratt fyrir sig og ég skynjaði metnað vilja til að selja. Mér fannst eignin mín rétt verðmetin og ég var ánægð með útkomuna. Mæli hiklaust með Jóhönnu í Húsaskjóli.
Klárlega besti fasteignasalinn hún Ásdís Rósa. Fagmennska fram í fingurgómana. Allt upp á hundrað.
Vönduð, fljót og persónuleg þjónusta. Auðun hefur selt eignir fyrir nokkra vini og vandamenn og allir hafa átt mjög góð samskipti við hann og upplifun af öllu söluferlinu. Ég gef honum og Húsaskjóli mín sterkustu meðmæli!
Seldum í gegnum Húsaskjól i október 2021 og vorum með æðislega dömu Ásdísi Rósu sem algerlega sá um okkur og seldi íbúðina hratt og vel gætum ekki verið ánægðari með söluna. Allt gekk vel og fagmannlega og við virkikega sátt. Teljum okkur ansi heppin að hafa fengið Ásdisi Rósu til að sjá um okkur i þessu ferli.
Mæli 100% með. Ásdís Rósa hefur selt tvær fasteignir fyrir okkur og við gætum ekki hafa verið ánægðari með allt. Professional þjónusta, allt 100% vel gert og við gátum alltaf leitað til hennar með spurningar, ráð og hjálp. Báðar fasteignir seldust nánast strax. Við munum klárlega leita aftur til Ásdísar Rósu í framtíðinni.
Get mælt með Ásdísi Rósu Ásgeirsdóttur ef þið viljið selja fasteignina ykkar. Heiðarleg, vinnusöm og alltaf glöð.
Við fengum einstaklega fagmannlega og vandaða þjónustu hjá Ásdísi Rósu Ásgeirsdóttur, fasteignasala og mælum með henni.
Við skrifuðum undir kaupsamning í gær fyrir okkar fyrstu eign. Ég gæti ekki verið ánægðari með þjónustuna. Ásdís er frábær og talaði við okkur og ráðlaggði nánast sem vinur! Við höfum ekki fundið aðra eins hjálp við okkar leit á húsnæði og þau höfðu góða þolinmæði og gáfu okkaur þann tíma sem við þurftum. Allt hefur verið skýrt og þægilegt frá byrjun til enda, við Elvar Viðarsson getum klárlega mælt með þeim!
Við keyptum nýverið okkar fyrstu íbúð og sú eign var í sölu hjá Ásdísi í Húsaskjóli. Það að kaupa fasteign er eitthvað svo fjarstæðukennt, fjárhæðir sem maður áttar sig ekki á, allskonar flækjustig í gegnum lánastofnanir o.sv.fr. Þar sem við kærasti minn höfum verið í námi kom greiðslumatið ekkert sérlega vel út og framan af leit þetta út fyrir að við myndum ekki fá lánveitingu. Það má alveg segja að þetta ferli hafi kostað okkur blóð, svita og tár og í lokin vorum við eiginlega búin að gefa upp vonina að eignast þessa eign. Við tókum ákvörðun um að upplýsa Ásdísi algjörlega um stöðu mála og vorum við viðbúin að þurfa að leita okkur að einhverju öðru. Hins vegar stór Ásdís allan tíman eins og klettur við bakið á okkur og hvatti okkur til að gefast ekki upp. Við, algjörlega græn á þessum markaði, vitandi lítið, þá var Ásdís alltaf til staðar og má segja að hún hafi verið eins og ungamamma sem passaði upp á okkur. Við erum Ásdísi ævinlega þakklát og getum ekki annað en mælt með henni og Húsaskjóli fyrir frábæra persónulega þjónustu!
Ég hef nokkrum sinnum átt viðskipti við fasteignasala í gegnum tíðina en aldrei nokurrn tímann fengið eins góða þjónustu og hjá Húsaskjól ekki nóg með að íbúðin mín seldist sama dag og opið hús var haldið heldur aðstoðaði Ásdís og hennar starfsfólk mig við að leita að nýrri íbúð, skoðuðu með mér og hjálpuðu við gerð tilboða ásamt öllu öðru sem til féll. Ég mun aldrei skipta við neina aðra fasteignasölu en Húsaskjól
Á vordögum hafði ég samband við Húsaskjól vegna sölu á íbúð, átti samtal við Ásdísi vegna þessa, í því samtali vogaði ég mér að segja,ef hún gæti selt íbúðina, þá stoppaði hún mig af og sagði það er ekkert ef, ég sel íbúðina. Hún stóð við það og vann góða vinnu fyrir kaupanda og seljanda. Þannig mæli ég með þeim eftir þessa sölu.
Virkilega góð þjónusta, snögg að selja og frábær samskipti. Völdum Húsaskjól eftir að hafa fengið meðmæli með Ásdísi Ósk. Stóð svo sannarlega undir þeim. Mæli heilshugar með Húsaskjól.
Takk fyrir mig, algjörlega hnökralaus og persónuleg þjónusta. Í alla staði til fyrirmyndar. Ásdís Ósk sýndi eignina og massaði þetta algjörlega og það á einum sólarhring
Ég keypti iðnaðarhúsnæði í gegnum Húsaskjól núna í vetur.Þar sem starfsfólk Húsaskjóls vann frábæra vinnu við þau kaup ákvað ég af þeirri reynslu sem ég hafði af þeim að láta Húsaskjól sjá um sölu á íbúð fyrir mig sem gekk frábærlega og fljótt að selja. Ég mæli sannarlega með starfsfólkinu þeim Ásdísi Ósk og Sveinbirni fyrir frábær vinnubrögð
Ásdís veit alveg hvað hún er að gera. Allt til fyrirmyndar, frábært að fá aðstoð fyrir myndatöku. Myndirnar sjálfar voru mjög flottar svo flottar að ég var næstum hætt við að selja :) Allt annað hefur staðið eins og stafur á bók. Takk fyrir mig.
Þegar ákveðið var að selja íbúðina og ræða við Ásdísi varð Húsaskjól fljótt valkosturinn, ekki þarf að orðlengja það frekar íbúðin seldist á viku. Ég mæli hiklaust með Húsaskjól frábær og fagleg þjónusta í alla staði.
Erum búin að eiga viðskifti við Ásdísi og Húsaskjól í mörg ár og alltaf líkað vel. Núna í nóvember fóru framm fjórðu fasteignaviðskifti okkar við Húsaskjól og allt var eins og best var á kosið.
Við keyptum framtíðareignina okkar í gegnum Húsaskjól. Við höfðum í langan tíma leitað að framtíðarhúsnæði en lent í ýmsum ógöngum og vorum alveg komin með nóg af því að leita. Ásdís hjá Húsaskjóli tók vel á móti okkur og leiddi okkur vel í gegnum ferlið og var þjónustan til okkar kaupendanna til mikillar fyrirmyndar með okkar hagi í huga sem og seljenda. Húsaskjól í allri sinni dýrð fær fyrirmyndar meðmæli frá okkur hjónum
Fyrir þó nokkrum árum mældi samstarfskona mín með Ásdísi þar sem eign okkar hafði verið á sölu í marga mánuði án þess að hún seldist. Samstarfskona mín sagði: Já, það er vegna þess að þið leituðu ekki til Ásdísar 😊 Ásdís seldi fyrrnefnda eign okkar á mettíma og við ætluðum ekki að trúa eigin augum. Svo ákváðum við hjónin nú í vor að selja eign okkar. Hún seldist á einu opnu húsi og við fengum fullt uppsett verð fyrir hana. Þjónustan sem Ásdís og Sveinbjörn veittu okkur var framúrskarandi í alla staði. Ásdís aðstoðaði okkur meira að segja við kaup á nýju eigninni, eitthvað sem var alls ekki í hennar verkahring þar sem að sú eign var í sölu hjá annarri fasteignasölu. Ég hef mælt með Hússkjóli og held áfram að mæla með Húsaskjóli.
Þegar við ákváðum að selja íbúðina á Frakkastíg síðasta vor, kom engin önnur til greina en hún Ásdís hjá Húsaskjóli til að aðstoða okkur. Hún hafði áður aðstoðað fjölskyldu okkar með sölur, og að vanda þá gekk þetta eins vel smurð vél. íbúðin fór eftir aðeins eitt opið hús og á réttu verði! Bæði Ásdís og Sveinbjörn veittu okkur framúrskarandi þjónustu. Kaupsamnings- og afsalsfundirnir gengu snuðrulaust og örugglega fyrir sig. Húsakjól fær 5 af 5 stjörnum hjá okkur hjónunum !!
Kærar þakkir fyrir góða þjónustu Ásdís og Sveinbjörn.
Ég seldi litla íbúð í miðbænum hjá Húsaskjóli í vor. Íbúðin var sýnd í forsýningu og seldist í framhaldi af því. Leigjendurnir fengu ósk sína uppfyllta og allt "umstangið" var afgreitt á nokkrum dögum á meðan þau voru í fríi heima í Póllandi. Það kom sér vel að hafa aðgang að pólskum túlki til að tryggja að ekkert færi milli mála varðandi leigusamninginn og afhendinguna. Kaupsamnings- og afsalsfundir voru mjög vel undirbúnir og gengu hratt og vel fyrir sig. Ásdís Ósk og Sveinbjörn sáu um söluna og það var alltaf hægt að leita til þeirra varðandi spurningar og álitamál sem upp komu í ferlinu.
Við seldum okkar fyrstu eign í gegnum Húsaskjól. Okkur leið vel allt ferlið og eignin seldist á viku hjá Ásdísi Ósk. Mælum með Húsaskjóli 😊