Þegar þú gerir tilboð í fasteign geturðu sett allskonar fyrirvara.
Algengasti fyrirvarinn er fyrirvari um fjármögnun, þá fær kaupandinn frest til að fara í sinn banka eða fjármálastofnun og sækja um lán eða reyna að fá fjármögnun á einhvern annan hátt áður en hann skuldbindur sig endanlega til að ganga frá kaupunum.
Sala á eigin eign er mjög algengur fyrirvari og þá sérstaklega á Íslandi, þá fær kaupandi tilsettan tíma til að selja sína eign. Þegar það er annaðhvort fyrirvari um sölu eða kaup á annarri eign þá hefur myndast keðja en það geta verið margar eignir í keðju.
Fyrirvari um ástandsskoðun er algengastur fyrir eldri eignir og eignir sem eru í annarlegu ástandi til dæmis ef það er grunur um rakamyndun í vegg eða gólfi.
Þá getur kaupandi fengið skoðunarmann til að fara yfir eignina og láta vita ef eitthvað er ekki eins og það á að vera.
Hvort sem þú ert að kaupa eða selja þá er mikilvægt að setja alla fyrirvara rétt upp í kauptilboðum til þess að þú sért ekki að skuldbinda þig meira en þú gerir þér grein fyrir. Þá er mikilvægt að fá fasteignasala til að fara vel yfir tilboðið áður en það er sent.
Ef þú ert með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn, sendu mér línu á steingrimur@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.
steingrimur@husaskjol.is - Sími: 869 2831