TEST database
fimmtudagur 23.07.2026

Plataði Stefnir verktakana?


Eftir að ég byrjaði að tala um verktakalánin og Stefni í janúar 2026 þá hafa ansi margir hagsmunaaðilar komið að máli við mig. Þetta er fólk í fjármála-, verktaka og fasteignageiranum og margir ansi hátt settir. Einn góður maður sagði, það eru flestir sammála því sem þú ert að segja, það eru bara svona óformleg samantek ráð að ræða þetta ekki.

Ég er því búin að heyra allskonar sögur um hvert raunverulegt plan með samningana var og ég íhugaði að eyða miklum tíma í að rannsaka þetta en svo mundi ég að ég heiti ekki Ásdís Brockovich og ég fæ engan bónus fyrir að rannsaka þetta. Ég ákvað því að henda bara fram öllu sem ég hef heyrt og skora á Stefni og/eða rannsóknarblaðamenn að fara yfir hvað er satt og hvað er logið.

Ég vil ítreka að þetta eru bara hlutir sem ég hef heyrt og ég hef ekki hugmynd um hvað er rétt eða rangt. Það sem langflestir hafa sagt er að það stóð aldrei til að verktakarnir yrðu meðeigendur með sínum kaupendum í 10 ár þrátt fyrir falleg loforð um að við gerum þetta saman. Planið var alltaf að búa til fjármálagjörning og selja hann áfram til Lífeyrissjóðanna með afföllum. Ég heyrði í nokkrum lífeyrissjóðum sem staðfestu að þeim hefði verið kynnt verkefnið en þeir hefðu ekki farið í þetta. Það er samt bara vika síðan aðili sagði við mig á innsoginu, auðvitað koma lífeyrissjóðirnir inn í þetta, það er alveg á hreinu.

Þetta er eitt af því sem ég hef aldrei getað fengið til að ganga upp. Hvers vegna ættu verktakarnir að vilja binda 20% af sínu eigið fé til 10 ára, sérstaklega núna þegar þeir eru í vandræðum með að fá fjármögnun í næstu verkefni og mörg eru því stopp. Slúðrið segir því að það séu einhverjir ósáttir verktakar út í bæ.

Önnur saga sem ég heyrði var að fyrst að lífeyrissjóðirnir stukku ekki á þetta þá sé planið að gera þetta að markaðsvöru, hvernig ekki hugmynd en loksins gengur grein 39.2 upp: “REIR20 er heimilt án samþykkis viðskiptavinarins að framselja réttindi sín og skyldur samkvæmt samningnum, að hluta til eða að öllu til félaga í sömu félagasamstæðu og REIR20 og til allra annara félaga”

Ég spurði Stefni út í þessa grein og hvort að það mætti virkilega framselja hverjum sem er hvað sem er hvenær sem er. Nei, auðvitað þarf viðkomandi að starfa undir eftirliti fjármálaeftirlitsins var svarið. Hvers vegna er það þá ekki tekið fram, gleymdist það bara?

Stóra spurningin er, ef það átti að selja lífeyrissjóðunum eða hverjum sem er 20% í íbúð kaupanda á afföllum, hversu mikil afföll erum við að tala um og hvers vegna mátti þá unga fólkið okkar ekki bara kaupa þessa íbúð á afföllum. Erum við í alvöru sátt við það að gera fyrstu íbúð unga fólksins okkar að markaðsvöru til að græða á og hvernig verða þeirra hagsmunir tryggðir eftir 10 ár þegar það þarf að gera upp lánið. Ertu sammála?

Deildu og taggaðu einhvern sem gæti skoðað þetta nánar. Ég þarf að fara út í garð að reita arfa.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

– 863 0402



Aðrar færslur