TEST database
fimmtudagur 22.10.2026

Sjaldan verið betri tími til að kaupa og akkúrat núna

Sölutími eigna er að lengjast og fleiri eignir eru til sölu núna en oft áður.

Það þýðir að kaupendur hafa um fleiri eignir að velja og geta gefið sér tíma til að finna draumaeignina.

Þrátt fyrir að vextir séu hærri en undanfarin ár þá hafa verðin verið að gefa eftir og í dag er mun auðveldara að bjóða undir ásettu og í júní 2026 seldust tæplega 40% fasteigna undir fasteignamati.

Til að gera bestu mögulegu kaupin er mikilvægt að tilbúin að kaupa og því færri fyrirvara sem þú þarft að setja því betra.

Því mælum við alltaf með því að selja fyrst og kaupa svo og einnig að vera kominn með staðfest greiðslumat ef þú þarft að fjármagna með húsnæðislánum.

Við erum núna á kaupendamarkaði og vel undirbúnir kaupendur geta gert betri kaup en þeir sem eru með fyrirvara sem þarf að leysa úr.

Þrátt fyrir að vextir séu háir þá eru verðin lækkandi og því mæli ég með því að kaupa núna og endurfjármagna þegar vextir lækka þar sem það hefur alltaf gerst að með lækkandi vöxtum þá hækkar húsnæðisverð. Það er því góður tími núna til að tryggja draumaíbúðina og koma sér inná markaðinn.

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

863 0402



Aðrar færslur