Þann 2.febrúar 2026 var viðtal á visir.is við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra sem segir að fyrsta skrefið að afnámi verðtryggingar verði stigið næstu áramót, 2026 – 2027.
“Kristrún segir fyrsta skrefið fela í sér að fólk muni þurfa að standa skil á lágmarksafborgunum af láni sínu. Þetta muni hafa áhrif á fyrstu kaupendur og því eigi að verja þá með öðrum úrræðum. Þetta fyrsta skref eigi þannig frekar að setja pressu á fólk ofar í eigna- og tekjustiganum sem hefur tekið verðtryggt lán án þess að þurfa það og borgar minna af láni en það í raun getur.”
Ég horfði á þetta og hugsaði hvaða fólk er hún að tala um?
Er þetta mín kynslóð sem loksins er farin að geta um frjálst höfuð strokið. Börnin eru orðin uppkomin og við getum aðeins farið að slaka á og njóta lífsins. Jafnvel fara í allskonar spennandi ferðalög. Það kemur hins vegar ekkert fram hvað hún er að hugsa. Er hún að hugsa um að við eigum að stytta lánin okkar? Eigum við að greiða hlutfall af launum og þá hvaða hlutfall? Hvers vegna kemur forsætisráðherra Íslands það við hvað ég borga af húsnæðislánunum mínum og hvað ég geri við mitt sjálfsaflafé?
Fólk með fjármálaforréttindablindu á háu stigi er voðalega duglegt að segja öðrum hvernig þeir eiga að lifa lífinu þannig að ég ætla að varpa boltanum yfir á Kristrúnu. Hvað nákvæmlega ertu að segja. Hvaða fólk er þetta og hvað viltu að þetta fólk geri? Ef við myndum öll taka hana á orðinu og setja alla okkar orku í að borga eins mikið og við getum af húsnæðisláninu okkar og skerum niður alla neyslu í staðinn hversu langan tíma tæki það hagkerfið að hrynja, 3 mánuði, 6 mánuði eða ár og þegar við erum öll búin að borga upp húsnæðislánin okkar hvað tekur það bankakerfið langan tíma að rúlla þegar þeir fá engar vaxtatekjur?
Kristrúnu til upplýsingar þá er ég með verðtryggt lán og það eru 16 ár eftir af því. Ég greiði inn á það reglulega og stytti það þannig ennþá meira. Myndi Kristrúnu líða betur ef ég væri að greiða meira til bankanna? Er gott fyrir fólk á miðjum aldri að vera með 40 ára þannig að ellilaunin okkar geti farið í bankahýtina eða hvað var pælingin á bakvið þessa hugmynd?
Mitt plan er að verða skuldlaus áður en ég fer á eftirlaun en ég er 57 ára núna og ef ég þarf að taka 40 ára óverðtryggt lán þá kemst ég ekki á eftirlaun fyrr en 97. Nennir því einhver?
Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.
863 0402