Hann Sigurður Jónsson er ekki alltaf ánægður með efnið frá mér og hann var sérstaklega súr með video sem heitir: “Það hefur sjaldan verið betri tími til að kaupa en akkúrat núna”. Hann sagði að þetta tal væri ábyrgðarlaust, það væri ekki rökstutt með neinum gögnum og það væri ekki hægt að góla svona bara af því bara. Bætti svo við að Ragnar Önundarson sem hefði meiri menntun en ég hafi skýrt það út að það séu hættulegir tímar framundan og fasteignabóla hafi myndast og þá æði ég og segi öllum að kaupa. Ábyrgðarlaust.
Á hverju byggi ég svo sum þessa skoðun?
Ég er búin að vera fasteignasali í 23 ár og ég er búin að sjá fasteignamarkaðinn fara upp og niður. Vitið þið hvað gerist þegar botninum er náð. Jú hann fer upp aftur. Það hefur enginn náð að vera svo með puttann á púlsinum að hann getur keypt á lægsta punktinum í hvert einasta skipti. Í hvert einasta skipti þegar markaðurinn lækkar þá koma fram allskonar aðilar og vara við því að kaupa núna því framundan sé hrun og allir eiga að halda að sér höndum. Ef nógu margir góla þetta þá fer fólk að halda að sér höndum alveg þangað til það getur ekki beðið lengur og þá fer allt þetta fólk af stað að kaupa.
Vitið þið hvað gerist þegar allir sem hafa beðið í x langan tíma fara af stað á sama tíma?
Jú þeir hreinsa upp markaðinn. Það verður íbúðarskortur og verðin rjúka upp.
Ég ákvað því að heyra í Jónasi Atla yfirhagfræðingi HMS sem er einn okkar helsti sérfræðingur á íbúðamarkaði í dag. Hann sendi mér þetta graf.

Þarna sést að hrun árið 2008 þá hækkaði fasteignaverð um 4% af nafnverði, 2009 lækkaði það um 10%, 2010 lækkaði það um 4% og 2011 var það byrjað að hækka aftur og hefur ekki hætt að hækka síðan.
Mín reynsla sýnir einfaldlega:
Verðin hækka þegar vextir eru lágir og verðin hækka minna þegar vextir eru háir.
Það er auðveldara að bjóða eignir undir ásettu þegar færri eru að kaupa. Þú átt alltaf valið en ég persónulega myndi alltaf frekar kaupa á kaupendamarkaði og endurfjármagna seinna heldur en á yfirbjóða á seljandamarkaði þó að vextir séu lágir.
Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.
863 0402