Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að það sé ansi erfitt fyrir venjulegt fólk að skilja samningana um verktakalánin. Þetta eru í raun 2 samningar. Annars vegar leigusamningur um 5% verðtryggða leigu um 20% hlutverktakans. Hins vegar Sameignarsamningur um þessi 20% sem verktakinn á í sameign með sínum kaupanda.
Ég skil ekki þörfina á því að hafa þessa samninga svona flókna þar sem samningurinn um hlutdeildarlánin eru 1 bls og samningurinn um húsnæðislánið mitt er 2 bls. Þessir eru tæpar 40 bls. Ég gafst upp eftir klukkutíma eftir að hafa eytt 15 mínútum í að lesa lið 15 þar sem það var sífellt verið að vísa í nýjar greinar eða tæplega 20 tilvísanir í heildina. Þannig að ég gafst upp á því að lesa samninginn. Það er lágmark að senda frá sér skiljanlega samninga sem allir aðilar geta skilið, ekki bara sumir.
Það er líka lykilatriði að gera sér grein fyrir því að ef þú skrifar undir eitthvað þá ertu að samþykkja það. Ef þú ert að hugsa um að kaupa íbúð með verktakalánum þá myndi ég mæla með því að biðja um að fá öll fylgiskjölin send áður en þú gerir tilboð, lesa þau vel yfir og þegar þú ert búin að gera það panta fund með einhverjum sem tengist þessum samningum, s.s. fasteignasalanum sem er að selja eignina, verktakanum sem byggði eignina, Stefni sem sér um samningana eða Aparta sem er tilgreindur sem umboðsaðili leigusala og biðja viðkomandi að fara yfir alla skilmálana sem þú skilur ekki í þessum samningum þar sem þú tryggir ekki þína hagsmuni eftir á og stundum er betra að spyrja fleiri spurninga en færri til að vera viss um að þú sért ekki að missa af mikilvægum réttindum.
Ég ákvað að nota yfirstrikunarpenna fyrir allt sem mér fannst óljóst, vafasamt eða skrýtið í þessum samningum og mér leið eins og ég væri að lesa undir lokapróf í áfanga sem ég hafði mætt illa í.
Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.
asdis@husaskjol.is – 863 0402