TEST database
mánudagur 27.04.2026

Má framselja hlut sjóðsins hverjum sem er?

39.1: Viðskiptavini er óheimilt að framselja réttindi sín og skyldur samkvæmt samningnum, í heild eða að hluta, án skriflegs samþykkis REIR20. Sama gildir um framsal o.fl. milli einstaklinga sem saman mynda viðskiptavin.

39.2: REIR20 er heimilt án samþykkis viðskiptavinarins að framselja réttindi sín og skyldur samkvæmt samningnum, að hluta eða öllu leyti, til félaga í sömu félagasamstæðu og REIR20, og til allra annarra félaga. Í slíku tilviki gengur félagið sem tekur við réttindum og skyldum REIR20 inn sem nýr aðili að samningnum, að öllu leyti eða að hluta, með sömu skilmálum og REIR20.

Hvað þýðir nákvæmlega grein 39.2? Eru einhverjar kvaðir á því hverjum má selja réttindi REIR20 og skyldur. Þeir tala um og allra annarra félaga. Hvaða kvaðir eru svo á því framsali. Má félag sem keypti þessi réttindi svo selja þau áfram. Eru kvaðir að þetta séu íslenskir aðilar eða getur kaupandinn allt í einu átt eign með erlendum vogunarsjóð. Ég myndi spyrja vel út í þessa grein hvað hún þýðir og hvort að það sé einhver áhætta fyrir kaupandann að einhvern tímann á tímabilinu muni hann geta tapað réttindum og við hvern hann sé að semja þegar kemur að því að greiða upp hlut verktakans í íbúðinni.

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

asdis@husaskjol.is – 863 0402



Aðrar færslur