TEST database
fimmtudagur 30.07.2026

Við kynnum með stolti Nýbúadeild Húsaskjól

Quieres jalapeños con los Nachos og ég sem skildi ekki orð í spænsku sagði bara si, því það hljómaði sannfærandi. Þarna var ég nýflutt til Honduras og var að fara í bíó í fyrsta skipti. Það hljóp heldur betur á snærið hjá mér þegar ég áttaði mig á því að það fékkst ekki bara popp og kók heldur bestu Nachos í heimi með ostasalsa sem bráðnaði í munninum. Þegar ég settist inn í mykraðan salinn og byrjaði að gæða mér á Nachosinu þá lærði ég hratt hvað þetta Jalapenos var þegar ég stakk upp í mig hálfum eldpipar eða svo.

Ég skildi ekki orð í spænsku þegar ég flutti til Honduras en þegar ég flutti heim aftur þá var ég altalandi. Það er styrkjandi að búa erlendis og þurfa að læra allt frá grunni. Mínar áskoranir voru hins vegar alltaf minniháttar eins og að borða óvart eldpipar í bíó eða taka rútu í rangt land. Þess vegna dreymdi mig alltaf um að geta boðið nýbúum upp á framúrskarandi þjónustu á þeirra tungumáli við kaup og sölu fasteigna og í dag hefur sá draumur loksins ræst, tók ekki nema 23 ár.

Ég kynni með stolti Nýbúadeild Húsaskjóls.

Við erum 4 til að byrja með, ég er framkvæmdastjóri og með mér eru 3 öflugir löggiltir fasteignasalar sem allar eru nýbúar og þekkja því af eigin raun allar áskoranir þegar kemur að því að koma sér fyrir í nýju landi og læra nýtt tungumál frá grunni. Þær tala allar reiprennandi íslensku og ensku og svo 1-3 önnur mál.

Dominika hefur verið hjá Húsaskjóli í tæp 12 ár. Hún byrjaði sem túlkur og útskrifaðist sem löggiltur fasteignasali í ár, fyrsti Pólverjinn sem útskrifast sem löggiltur fasteignasali á Íslandi.

Tanja er fyrsti úkraníubúinn sem útskrifast sem löggiltur fasteignasali á Íslandi, hún útskrifaðist reyndar fyrir nokkrum árum og í ár kláraði hún BA í lögfræði.

Marly er fyrst frá Afríku til að útskrifast sem löggiltur fasteignasali og samanlagt tölum við 8 tungumál. Íslensku, ensku, pólsku, úkranísku, rússnesku, spænsku, portugölsku og kreólsku.

Við hlökkum gífurlega til að geta veitt sem flestum framúrskarandi fasteignaþjónustu á þeirra tungumáli og við erum sko bara rétt að byrja.

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

– 863 0402



Aðrar færslur