TEST database
fimmtudagur 11.06.2026

Algeng mistök seljenda á kaupendamarkaði

Ef þú ert að selja íbúð í dag, 2026, þá virkar ekki að nota sömu aðferðir og voru algengar 2021, þegar það var mikill seljendamarkaður. Hérna eru algeng mistök sem fólk gerir í kaupendamarkaði.

 

Að verðleggja of hátt í byrjun.

Í kaupendamarkaði er fyrsta vikan á markaði sú besta, það er þegar flestir áhugasamir kaupendur sjá eignina þannig að "við skulum bara prófa" virkar ekki jafn vel. Ef verðið er of hátt missir þú kaupendur og eignin verður "stale". Eftir 6 vikur ertu farinn að lækka verðið og þá ertu að semja við þá sem eftir eru, ekki þá sem voru tilbúnir að borga mest.

 

Að vera með lélegar myndir.

Kaupendur í dag fletta í gegnum 50 eignir í símanum áður en þeir mæta í opið hús. Ef myndirnar þínar eru ekki góðar þá mætir enginn. Faglegar myndir, gott ljós og tæmdar hillur er ekki valkvætt í dag.

 

Að vera með of mikið af “dóti” á sýningum.

Fjölskyldumyndir á öllum veggjum, persónulegt dót á borðum, sterkt litaval. Kaupandi á erfitt með að sjá sjálfan sig búa þarna. Þetta hljómar smávægilegt en það getur haft mikil áhrif, rétt undirbúin íbúð selst hraðar og á hærra verði. Tæmdu hillurnar, taktu niður persónulega muni og gerðu hana eins „blank canvas" og þú getur.

 

Hafðu samband áður en þú verðleggur, fyrsta verðlagning er sú mikilvægasta og það er erfitt að laga hana eftir á.

 

Ef þú ert með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn, sendu mér línu á steingrimur@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Steingrímur Þór Ágústsson
Löggiltur fasteignasali og hagfræðingur

steingrimur@husaskjol.is - Sími: 869 2831



Aðrar færslur