TEST database
fimmtudagur 21.05.2026

3 tips til að gera besta dílinn á fasteignamarkaði í dag?

Í dag erum við á kaupendamarkaði. Verðin fara ennþá lækkandi og vextir eru mjög háir. Það er gott að hafa í huga að það er mjög ólíklegt að bæði fasteignaverð og vextir fari lækkandi á sama tíma. Þannig að hér eru 3 tips til að gera besta dílinn í dag.

1) Vertu með staðgreiðslutilboð. Því betra og öruggara sem þitt tilboð er því meiri líkur eru á því að seljandinn skoði undirboð.

2) Vertu búinn að selja og búinn að fara í kaupsamning. Fyrirvari um sölu er óspennandi í dag þegar eignir taka margar vikur að seljast og það getur tekið marga mánuði að leysa úr keðjum.

3) Vertu tilbúin með þína í sölu áður en þú ferð af stað að skoða fasteignir. Það tekur tíma að undirbúa þína eign í sölu og kaupandi sem gerir tilboð í fasteign án þess að vera komin með staðfest verðmat hjá fasteignasala og greiðslumat er í raun bara að senda frá sér tilboð og krossa fingur að allt gangi upp. Best er að vera komin með eignina í forskráningu hjá fasteignasala og geta sett hana beint á sölu þegar rétta eignin er fundin.

Það getur í raun kostað nokkrar milljónir aukalega að kaupa fyrst og selja svo á lækkandi markaði þar sem í fyrsta lagi getur þú alltaf gert betri kaup ef þú ert ekki með fyrirvara um sölu og einnig geta keðjur tekið marga mánuði að losna sem þýðir að eignin sem þú festir þér á 80.000.000 er kannski bara 77.000.000 virði þegar þú ferð í kaupsamning eftir 6 mánuði. Þannig að miðað við núverandi markaðsaðstæður mæli ég alltaf með því að selja fyrst og kaupa svo og nei þú ert ekki búinn að selja þegar þú ert komin með staðfest kauptilboð heldur þegar þú ert búin að fara í kaupsamning.

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

asdis@husaskjol.is – 863 0402



Aðrar færslur